Hjartað hamast (bamm bamm bamm)

Sigur Rós

Hjartað hamast 
Eins og alltaf 
En nú úr takt við tímann 
Týndur og gleymdur heima hjá mér
 
Alveg að springa (Í gegnum nefið)
Sný upp á sveitta (Sængina) 
Stari á ryðið (Sem vex á mér) 
Étur sig inní (Skelina) 

Ég stend upp mig svimar (Það molnar af mér) 
Ég fer um á fótum (Geng fram hjá mér)
Klæði mig nakinn (Og fer svo úr) 
Vakinn en sofinn (Sef ekki dúr)
 
Tala upphátt og ferðast inni í mér leita 
Ég leita af lífi um stund 
Ég stóð í stað 
Með von að vin ég vinn upp smá tíma 
Leita að ágætis byrjun 
En verð að vonbrigðum

Hjartað stoppar 
Hreyfist ekki 
Kem gangráð fyrir (Sem ég kingi og fel) 
Finn startkapal (Og kveiki í mér) 
Sé allt tvöfallt (Tvöfallt svart) 
Kerfisbilun (Heilinn neitar) 
Held áfram að leita (Göngu með í stað)
Óstjórnandi (Upplýsingar) 
Þarf aftur að mata (Mata mig) 

Tala upphátt og ferðast inni í mér leita 
Ég leita af lífi um stund 
Ég stóð í stað 
Með von að vin ég vinn upp smá tíma 
Leita að ágætis byrjun 
En verð að vonbrigðum
En verð að vonbrigðum